Klukkan

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Vá hvađ mađur ţarf stundum spark í rassinn

07. september 2008 klukkan 21:27
Það að búa ein býr yfir mörgum kostum, maður er ekki truflaður, hljóð þegar maður vill hafa hljóð, ræður hvaða tónlistin er stillt hátt.. hvað maður horfir á í sjónvarpinu, hvað maður eldar. En það hefur einnig einhverja ókosti; Engin til að reka mann á fætur þegar maður vill einfaldlega bara sofa lengur. Engin til að tala við ef það liggur einhvað á hjartanu.  Engin til að segja góðan dagin við eða góða nótt. Einnig getur maður einangrað sig, umgengst aðeins fólk þegar maður er í vinnunni og flestar aðrar mínútur er maður bara einn, og fer kannski að finnast það óþægilega þægilegt. ...
   Til dæmist í gær ætlaði ég að fara út og gera einhvað um kvöldið, en ég ákvað bara að vera heima, horfa á sjónvarpið og teikna... engin til að ýta við mér og kannski verra er, engin til að koma með mér...  það versta í mínum huga við að fara í Partý sem manni er boðið í er að hafa engan til að tala við þegar þangað er komið,, kannski eru eingöngu pör þar eða mjög góðir vinir sem halda hópinn,...   Ég get verið mjög feiminn manneskja og er það kannski stór ástæða þess að ég sé ein, þarf kannski að fara á námskeið til að fá hugrekki til að tala við einhvern eða nota íslensku leiðina og hella mig fulla.!



XOXO
G

Margt breytist á einum mánuđum

17. ágúst 2008 klukkan 12:58
Á þeim mánuði sem ég hef tekið pásu í bloggi (af mörgum ástæðum) hefur mjög margt breytst.
    Í fyrsta lagi keypti ég mér eitt stk íbúð, 63 fm íbúð sem ég hef gert mjög smarta :D þó ég segi sjálf frá :D, húsgögnin blanda af IKEA og rúmfatalagernum (þó er allt frá IKEA nema borðstofuborðið+stólarnir) og sjonvarpsborðið/festingin úr Elko. 
     Ég er semsagt farinn að búa ein, fyrsta skiptið á ævinni, hef annað hvort búið með mömmu og pabba eða Ingu systur, þannig að þetta er tilbreyting og getur verið bæði mega þægilegt og stundum þó um of.
     Er búin að mála meirahlutan af íbúðinni, nema eldhúsið sem ég er ekki viss um lit á, og baðherbergið er flísalagt og dúkalagt þannig að ég gat lítið gert þar........ eftir að setja upp sturtubúnaðinn svo maður getur farið í sturtu án þess að þurfa að halda á hausnum :D
   
    Ég er orðinn vel brúnhærð á ný, ætti þó að vera ljós brúnt en þetta er skol þannig að það á eftir að lýsast eftir 5-6 vikur (vonandi :S) það var ekki ætlunin mín að vera nærri því svarthærð.
    Þurfti að fara í blóðprufu fyrir 2 dögum, til að athuga hvort að ég sé nógu heilbrigð til að fá að taka sterkt lyf sem eiga að "drepa" alla bóluframleiðslu hjá mér.. en sá dauði tekur langan tíma eða um hálft ár, verð orðin fín í janúar-ferbrúar, loksins.... ég hef prófað tvö lyf sem virkuðu ekkert þannig að ég bað um það sterkasta sem er einnig það erfiðasta fyrir líkaman, til að losna við þetta H**** fyrir fullt og allt, þá fer ég kannski að lúkka eins gömul og ég (er þó alltaf ungleg :D) og geta þorað að taka hárið frá andlitinu oftar.
    
    Jæja ég ætla að fara að laga til og svo leika mér í golf-leiki í tölvunni minni :D gaman, gaman

kv.
G

Ég hljóma líklega eins og nörd

19. júlí 2008 klukkan 00:06
Vá hvað það getur verið þægilegt að búa ein.. systir mín og maðurinn hennar eru nú í brúðkaupsferð og Emilía litla í pössun hjá ömmu sinni og afa. Ég fæ því íbúðina fyrir sjálfan mig og notaði hana í kvöld til að mála.. ekki á hverjum degi sem maður getur látið stofuna lykta af terpentínu/málingaþynni (hún er ekki góð)... Jebb er búin að hanga upp í sófa með pappirsþakið sófaborð fyrir framan mig og málað 3 myndir sem mynda saman eina mynd :S
   A morgun er svo planið að njóta góða verðsins, fara í góða gögnutúr og svo líklega um kvöldið elda mér góðan mat og leika mér svo í Playstation 3 ... nörd :D

Svo vonandi í vikunni mun ég eyða kvöldunum með pensil í hönd,,, ekki að mála myndir heldur veggi þar sem ég er að bíða eftir staðfestingu á láni hjá ils og á að fá íbúðina mína afhenda við undirritun kaupsamnings.. og get því byrjað að mála (er meira að segja búin að velja liti ... crazy me) , jebb ég er búin að fá samþykkt kauptilboð upp á krúttlega 63 fermetra íbúð í kópavogi þar sem ég get valið öll húsgögn sjálf í og fengið að ráða yfir tónlistarvali og sjónvarpsfjarstýrunni .... loksins, loksins.... Veit líka að hann mágur minn er orðinn leiður á mér en hann mun þó sakna sjónvarpsins sem ég tek með mér, ég skal bara segja að þau þurfa kannski að horfa á 20" túbu tæki í stað 37" flatskjás sem þau hafa vanið sig á síðustu mánuðina,, mohahaha,,,

kv.
G

Gleđi og sorg

14. júlí 2008 klukkan 12:34
Helgin sem var að ljúka var bæði góð og slæm.
Systir mín hún Inga Lára giftist Njál Mýrdal sem ég hef "fengið" að búa með síðustu 2 árin eða svo.. mjög falleg athöfn og  veisla af því loknu. Eftir veisluna fór Emílía Björk með mér heim og var ég með hana frá 7 á laugardaginn þangað til kl hálf 7 í gær... þá komu foreldrarnir heim eftir spa og lúxus á hótelinu á Selfossi (þar sem veislan var haldin)..
Í gær var svo hringt í okkur frá Vestmannaeyjum og sagt að Perla, elsku hundurinn okkar væri einhvað veikur.. vildi ekki borða neitt, væri titrandi og með blásin maga... við hringum í dýralæknir og var okkur sagt að margt gæti verið að eins og legið í henni væri og blása út, hún Perla var orðin 11 ára gömul í mannaárum um 80 ára í hundaárum. Í morgun var svo okkur tilkynnt að hún dó í nótt :S og væri búið að fara með hana í dýrakirkjugarðin upp á hrauni, maður þarf að fara til eyja á næstunni og merkja gröfina og leggja blóm á staðinn sem hun liggur... Guð blessi hana.  -ég mun sakna hennar svakalega mikið.


kv.
G

Ţó ţađ hljómi asnalega

05. júlí 2008 klukkan 22:17
.... Þó það hljómi asnalega er það góðs viti að húðin min er að flagna af... það þýðir raunar að húðin er fljót að taka við Green Peel meðferðinni og hún er að endurnýja efsta lagið á henni :D  Jebb ég er að flagna og kítlar í húðina en vil ekki vera að fikkta mikið í henni :)  Svo á þriðjudaginn á hún að vera búin að endurnýja sig og ég má fara að skrúbba þá nýju en þó með varkár.
Er búin að vera dugleg að laga til hér heima, skrúbba baðherbergið, endurraða í skápana þar og henda úr fataskápnum föt sem ég er eiginlega hætt að nota .... svo panta ég mér ný föt til að fylla hann aftur,..

kv.
G

Rautt Epli

04. júlí 2008 klukkan 10:53
Ég var eins og rautt glansandi epli hér heima í gærkveldi, eftir Green Peel meðferðina .... það er satt að maður líður og lítur út eins og eftir sólbrunna... og svo má maður ekki láta vatn koma á andlitið á næstu 4-5 dögum þar sem það getur haft áhrif á virkni efnisins í að leyfa gömluhúðina að flagna af :S En maður má nota þau efni sem maður fékk eftir húðslípunina...
Þetta skarast pínu á við það plan að vera dugleg í ræktinni þar sem ég get ekki púlað í ræktinni og ekki geta skolað svitan af andlitinu .... verð bara að vera dugleg frá og með næsta miðvikudeginum :D

En já nú er ég bara í því að laga til, og mála grunn á nokkur málverk,, stór og smá.

kv.
G

Sumarfrí

02. júlí 2008 klukkan 23:38
Frá og með morgundeginum er ég komin í sumarfrí :) Hef þó ekkert planað annað en að vera dugleg að fara í ræktina, sund og borða hollan mat... kikk starta megrun :S
Er meira að segja að fara í húðmeðferð á morgun sem kostar 40 þúsund kall,,.. svona Green Peeling sem endurnýjar húðina á 5 dögum og hreinsar í burtu óhreina, bólótta húð vonandi ....

Svo kannski klippi ég hárið mitt stutt og lita það.. þá get ég gert svakalegt makeover á mér í sumarfríinu .... yrði það ekki gaman :D En er samt efinn um að ég get komið mér í það form sem ég vil komast í en auðvitað reyni ég mitt besta og skrá annað heimilsfangið mitt í gymminu.

Svo í verðlaun ef mér gengur vel er ég búin að velja fullt af dóti í forever21 til að panta..... svona haust föt.. og ætla einmitt um helgina að fara yfir fatahrúuna mína og gefa Rauðakrossinum föt sem ég nota ekki eða lítið sem ekkert.... Ný föt nýtt líf fyrir Tæknifræðingin sem starfa sem ekki sem slíkur og lít ekki út fyrir að vera slíkur ...

See Ya...
Update af "í form" planinu mínu verður sett inn reglulega í þessu átaks-sumarfríi
Gudrun

Árgangsmót 1984 árgangur

23. júní 2008 klukkan 20:31
Sjá myndir af óvissuferđ barnaskólagengisins sem farin var á laugardaginn, haldiđ var Árgangsmót fyrir 1984 árganginn núna um helgina, á laugardeginum var haldinn ratleikur fyrir barnaskóla og hamarskóla í sitthvornum skólanum..... gaman, gaman.
Vinningshafarnir voru; Adda, Anna Jóna, Sara og Viktor Ingi.

Útskrifuđ

17. júní 2008 klukkan 17:12
Jebb ég er útskrifuð, ekki af geðdeild (þó að hefði átta að kíkja þar inn í gærkveldi, hahaha) heldur úr háskólanum í Reykjavík ....
... Var ein af fáum stelpum sem útskrifuðust sem tæknifræðingar og sú eina í bekknum, maður er nú orðin vanur að vera í minnihluta gagnvart karlkyninu td. í vinnunni.
Föstudagurinn fór í að gæsa Ingu systur sem er að fara gifta sig eftir mánuð, og svo þurfti ég að mæta upp í Vodafonehöll kl. 10!!!! á laugardagsmorgun.. þannig að ég var kannski minna sofinn en ég átti að vera.  Hélt lítið kaffiboð fyrir fjölskylduna eftir útskrift og svo matarboð fyrir vinkonunar um kveldið, ekkert djamm heldur spilakvöld og róleg heit,, eins og ég fíla það best (hef þó ekki reynslu á djamminu)

Svo í gær þá tók ég þá geggjuðu ákvörðun að fá mér nokkra bjóra með vinnufélögunum og endaði það kannski aðeins í hærri akahól % en ég ætlaði mér,, var komin með hausverk um 2 leytið og fékk mér nóg af vatni... sleppti alveg bænum og fór bara með Taxi heim, samferða tveimur nöfnum sem leyfðu mér ekki að greiða fyrir bílinn þannig að skulda þeim líklega einhvað :S .... þar sem ég mann eftir þessu og vil borga fyrir mig sjálf :D - í stuttu máli var allt djammið í boði vinnunar, maturinn, bjórinn og farið heim :D

kv.
Guðrún

EInhver Von

10. júní 2008 klukkan 22:17
Vá hvað er von lygt að málinga þynni :)
Er byrjuð að mála.. kannski ekki á fullu en einhvað og sjá má afrekstur í Headernum hjá mér, Notaði fyrstu myndina sem ég málaði núna í vikunni og Wordaði-hana til og bjó til töff header þó ég segi sjálf frá og kannski hef ég það markmið að skipta út headernum þegar ný mynd er tilbúin :) þá hef ég kannski einhvað til að drífa mig áfram.

Guðrún "Gúrý"

Prófíll

  • Nafn: Guđrún Ósk Sigurjónsd
  • Stađur: Kópavogur
  • Atvinna: Verđandi tćknifrćđingur
  • Um mig: Anti-djammari, tćkjafrík og strákastelpa..