Rautt Epli
04. júlí 2008 klukkan 10:53
Ég var eins og rautt glansandi epli hér heima í gærkveldi, eftir Green Peel meðferðina .... það er satt að maður líður og lítur út eins og eftir sólbrunna... og svo má maður ekki láta vatn koma á andlitið á næstu 4-5 dögum þar sem það getur haft áhrif á virkni efnisins í að leyfa gömluhúðina að flagna af :S En maður má nota þau efni sem maður fékk eftir húðslípunina...
Þetta skarast pínu á við það plan að vera dugleg í ræktinni þar sem ég get ekki púlað í ræktinni og ekki geta skolað svitan af andlitinu .... verð bara að vera dugleg frá og með næsta miðvikudeginum :D
En já nú er ég bara í því að laga til, og mála grunn á nokkur málverk,, stór og smá.
kv.
G