Klukkan

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Viđ getum öll litiđ út eins og stjörnur :)

15. janúar 2008 klukkan 22:37
Það útlit sem allir sækjast eftir er útlit búið til úr töfrakremum, megrun, hyljara og öðrum snyrtivörum :) maður á ALDREI að miða sig við "fallega" fólkið sem maður sér í kvikmyndum, í tímaritum og fréttum af rauða dreglinum... nema auðvitað maður er á því augnabliki til höfð /hafður eins og maður er að fara á svaka date eða frumsýningu ofl.

Að mínu mati á maður ekki að hafa mikið af speglum hjá sér, þeir láta mann hugsa of mikið um útlit hmmmm.


Auðvitað eru flestar þessar myndir teknar á versta augnablikinu... á sömu síðu er að finna fullt að fleirri myndum og verð ég að viðurkenna að margar eru þær bara krúttlegar án farða... með farða kannski of spari spari eða sexý.
Eins og: Jennifer Lopez, Bethany Joy Lenz, Shakira, Beyonce ofl.

Geisp

11. janúar 2008 klukkan 22:55
Fyrstu 10 dagarnir af árinu 2008 eru búnir. Búið að vera nóg að gera og er bara gott þarf sem það er bara gaman og tímin fljótur að líða. Búin að selja litla húsið mitt í eyjum og byrjuð að lesa bók sem fjallar um annað en orkutæknifræði, fjármál eða vöruþróun :), hún heitir True Believer eftir höfundinn Nicolas Sparks (The Nootbook, a walk to Remember).

Eyði of miklum tíma í sjónvarp og þætti sem ég hlaða niður af netinu en auðvitað reynir maður að minnka gláp á skjá og nýta tíman í að lesa, mála eða kannski leika í PS3 tölvunni :D
Það er föstudagur og ég sit við tölvuna, skrifa þessa blogg færslu, Horfi á fyrstu þættina í 5.seríu One Tree Hill og jú Geispa.Saklaus

Nýtt ár ný Síđa

31. desember 2007 klukkan 14:21
Ég hef ekki gefið mér mikin tíma síðust ár til þess að blogga og viðhalda slíkri síðu þó hef ég byrjað með nokkara og raunar gefist upp þar sem engin tíma var til að rita skemmtilegar hugsanir.
Nú þegar ég er núna búin með 102 einingar og er aðeins 3 einingum frá því að fá stafsheitið Tæknifræðingur held ég að ég get dundað við nokkrar skriftir öðru hverju... 
Það eina sem ég er hrædd um er að ég er að fara að starfa við vefverslun og er þvi mest allan tíman í vinnunni við tölvu (~70%) og spurning hvort maður vill eyða kvöldum í henni líka. En jú maður hefur kannski ekkert annað að gera :D

Nú er síðasti dagur ársins 2007 og árið 2008 gengur í gegn eftir nokkra klukkustundir. Verður það ár útskriftar, ræktar, lesning bóka (EKKI kennskubóka), vináttu, listrænar vakningar og jú aukinnar skriftar í "dagbók" þessa.

kv.
Guðrún Ósk  aka. Gogo  aka. Gúrí aka. Gugga :)

Prófíll

  • Nafn: Guđrún Ósk Sigurjónsd
  • Stađur: Kópavogur
  • Atvinna: Verđandi tćknifrćđingur
  • Um mig: Anti-djammari, tćkjafrík og strákastelpa..